Thursday, May 04, 2006
Lífið er hafið á nýjum stað!



Monday, March 20, 2006
Hættur

Jæja ég vil bara þakka fyrir þann tíma sem þið hafið nennt að eyða í lesningu hjá mér. Nú ætla ég að leggja pennan frá mér og leggja fyrir mig önnur málefni til að mynda útsaum og slíkt.

Það verður ekkert hérna nema þegar ég set inn myndir og slíkt en ég er hættur öllum skirftum um daglegt líf en hvet ykkur til að lesa pistlana sem eru undir skoðanir. Þar ætla ég að æfa mig að skirfa málefnalega pistla og slíkt og endilega kommentið um málefnið....

En læt ykkur vita ef mér snýst hugur en allavena núna er ég alveg búinn enda orðinn settlegur og hamingjusamur!

Kv

Þorsteinn


Posted at Monday, March 20, 2006 by stony
comments (5)  




Wednesday, March 08, 2006
Vá hvað ég er tómur!

Þið verðið bara að afsaka en ég veit ekkert hvað ég að skirfa...það er langt síðan að ég hef lent í því en nú er komið að því.

   Datt samt í hug að segja ykkur það að kallinn er á leið til londonar í næstu viku. Ætla að kynna mér viðskiptalífið þar ytra og aldrei að vita nema maður gerir eitthvað annað til að mynda versla!!!!! Úfff hvar eru Björg og Anna núna???´æææiii ég verð bara nota hina kellinguna hana Einar eða lonely Weekend! Yes mr. lonely....

Annars er skólinn að gera mig vitlausan.....hélt samt að það ætti að vera öfugt en maður lærir greinilega helling í þessum skóla! (fyrir sem föttuðu ekki brandarann þá er orðið vitlaus dregið að því að maður veit ekkert ( bara fyrir þig júlía))

Annars held ég að ég sé að verða gamall....þrái svefn á kvöldin en er eiturhress á morgnanna??? hummm.......skil ekki þessa viðsnúninga!

Lenti í svolitlu óþægilegu í dag þar sem við vorum að ræða um laun og annað og 2svar notaði ég orðið kellingar....skil ekki ennþá hvernig ég komst lifandi út!

Þangað til næst...OVER


Posted at Wednesday, March 08, 2006 by stony
comment (1)  




Thursday, March 02, 2006
Öskudagur alla daga eða???

Ég áttaði mig á því að ég upplifi alla daga sem öskudaga. Við hliðina á skólanum mínum er framhaldskóli sem heitir Verslunarskóli Íslands. Kvennfólkið þar er málað þvílíkt mikið að ég gat ómögulega gert greinamun á þeim og krökkunum sem voru málaðir í gær.

Annars er ég farinn að upplifa kvennfólk sem málarsig mikið sem happaþrennu. Þú skefur og athugar hvort þú hafir unnið. oft þegar ég sé mikið málað kvennfólk langar mig mest að hlaupa að þeim með uppleysanlegum efnum og klútu og byrja að skafa.....

OVER


Posted at Thursday, March 02, 2006 by stony
comments (3)  




Tuesday, February 21, 2006
Klósett

Ég hef eftir samtal við góðan mann og konu ákveðið að opna þessa umræðu...hvað er gert á klósetinu? Til að mynda ég; verð ég að taka með mér blað, sitja vel og lengi en stend upp þegar ég fæ nálardofa í fæturnar. Þannig næ ég að kúpla mig frá öllu, enginn að trufla heldur get ég hugsað um daginn og veginn án þess að einhver er að skipta sér af mér. Klósettið er oft eina fríið sem maður fær, rétt að tillasér og koma sér af stað aftur...kýs ég frekar að droppa vel og lengi íhuga það sem ég er að fara að taka mér fyrir hendur með góðu blaði!

góð ráð á klósettinu:

Ekki taka mogga með....hann er of langur en fréttablaðið og blaðið er passlegt.

Lestu séð og heyrt eða hér og nú......önnur blöð eru of dýr til að blúppsið skemmi þau ekki

 

OVer

 

p.s. suma dreymir gull og græna skóga en mér nægir þá sem eru í kringum mig!

 

 


Posted at Tuesday, February 21, 2006 by stony
comments (12)  




Thursday, February 16, 2006
Ég er karlmaður enginn aumingi!

Það er alveg skelfilegt þegar ég uppgvöta eitthvað sem er svona common sens en þar sem ég er karlmaður þá fatta ég stundum ekki einfalda hluti.

   Ég keypti mér eitt sinn svona rúllu til að geta tekið hár og svoleið af fötum, fannst mér þetta þræl sniðugt en fannst þetta svolítið dýrt. Vissi ég ekki að maður gat tekið límið af og undir því væri nýtt heldur henti ég bara rúllunni og keypti nýja.

   Alltaf þegar ég vaska upp þá er bara sápa því það er ekki hægt að setja nokkra dropa af þessu drasli.

   Þegar ég skúra þá skúra ég bara í kringum hlutina því það er hvort sem er enignn að labba undir sófa eða slíkt....náði aldrei afhverju að þrífa þar

   Til hvers að brjóta saman þvottinn ég meina hann verður hvort sem er skítugur eftir nokkra daga og alveg óþarfi að standa í svona rugli

   Afhverju að setja klósettsetunu niður? þá þarf ég bara að setja hana upp næst þegar ég fer að pissa!

   


Posted at Thursday, February 16, 2006 by stony
comments (10)  




Tuesday, February 14, 2006
Hversdagsleikur

Dagur hverdagsins er skemmtilegur hjá mér. Vakna, borða, skóli, "læra", vinna og svo bara liggja upp í sófa með tærnar upp í loft.....hversdagsleikurinn er ekki neinn leikur heldur viðburður fullur af óvæntum uppá komum....ég átti til dæmis aldrei von á því hvernig OC endaði í gær.....alltaf gaman þegar hversdagsleikinn breytist....ég meina kannski vinnur Arsenal í kvöld....

En hver er munurinn á hversdagsleika og hvordagsleika? Er verið þá að tala um annanhvorn dag eða?????????

æiiiiiii ég ætla að fá mér snúð.......


Posted at Tuesday, February 14, 2006 by stony
comments (2)  




Sunday, February 12, 2006
HAHAHAHAHAHAHA!!!!!!!!!

Ég veit ekki með ykkur en ég er að drepast úr hlátri.......

Dagarnir líða og það er skömm hvað það er langt síðan að ég skrifaði eitthvað hérna, mikið að gera í skólanum og vinnu. Valla að maður nái að sofna fyrir verkefnum og slíku. Svo lifi ég í þeim ótta að muna ekki eftir neinu loksins þegar ég sest niður og ætla að skrifa eitthvað hérna.....það er eiginlega bara skömm.

 

Ég er að fara til London í næsta mánuði ef Guð lofar og er það mjög spennandi enda framúrskarandi borg til að heimsækja...svo er maður farinn að plana sumarið...verður það grænt eða blátt??? Maður spyr sig..

Helgin fór í að liggja með tærnar upp í loft í heitum potti, stjörnur, LOST, svefn og bíltúr....ætlaði að læra en bara skippaði því enda ekki á hverjum degi sem sumarbústaður verður fyrir valinu.....

 

Jæja lofa að koma með færslu aftur í vikunni, hvet ykkur til að kommenta til að koma smá lífi hér á aftur;)

 

BÆBBS


Posted at Sunday, February 12, 2006 by stony
comments (5)  




Wednesday, February 01, 2006
Bloggi

Nú er ég í átaki....ætla að stefna á að gera betur í dag en í gær...stundum betur en í fyrra.

Mér líður eins og fugli þessa dagana er að bíða eftir að geta hafið mig á flug og flogið út um allt. Mér líður eins og ég sé frjáls...og ég skemmti mér! Life is buty so are you;) Hvernig fer maður að því að vera svona funny? Fékk að heyra það í dag að ég sé skemmtilegasti kennari í heimi! Takk fyrir það kærlega......það kom til mín ung snót og sagði þessi fallegu orð til mín....takk

Ég lenti í því aftur....eistun fóru á flug....ekki gott.......vá hvað hún er mikið krútt hún Hjördís.....samt eru ekki allir sáttir held ég við mitt dálæti á þessari stúlku! Sorry Guðbjörgcry

Fyrsta próf þessarar annar á morgun....dudduruuuuu.....markaðsfræði...æii nú þekki ég markaðinn ekki nógu vel.....

Hef verið að þýða nokkur nöfn yfir á ensku.

Þorsteinn - darestone

Einar Helgi - Lonely weekend

Guðbjörg - Godrock

Júlía Guðrún - july godrune

Haukur - Hawke eða haukur í horni: friend in court

Hafsteinn - Seastone

Over í bili....reyni að verð duglegri fyrir ykkur crasy fanduck (isl. æstu aðdáendur)


Posted at Wednesday, February 01, 2006 by stony
comments (7)  




Thursday, January 26, 2006
Nýtt upphaf - nýir tímar

Heldur betur sem þetta ár verður skráð í spjöld sögunnar. Hamingjan gríðarleg og ekki frá því að maður svífur á bleiku skýi (Góður litur). Ég hef verði að hugsa mikið undanfarið.....

   Ég hef verið aðeins að vinna að málefnum örykkja og sé ég ekki betur en að Jón Heiló eins og ég kýs að kalla hann sé farinn að stuðla að lýknadrápi! Meðan við þjóðfélagsbúar reynum að ýta hjólastólnum þeirra í grýttri jörðinni og koma þeim framhjá þeim gildrum sem hann leggur fyrir. Stekkur hann fyrir okkur hrifsar öryrkjan úr stólnum og byrjar að sparka í hann en passar sig að drepa hann ekki...alla vena ekki ekki strax...því næst dregur hann úr bótum þeirra, óskar þeim heitast að skylja sem eru giftir því ef þeir gera það ekki fá þeir ekki eins miklar bætur, þeir meiga ekki taka þátt í góðærinu. Hann óskar þess heitast að þeir gefist upp og deyi "eðlilegum dauðdaga" en kannski áttar hann sig ekki á því að hann stuðlar að því að öryrkjar fái ekki til hnífs og skeiðar!

Jæja nú er ég búinn að losa þá gremju sem býr í mér þessa stundina og vona ég að ég geti bloggað um hamingjuna og eitthvað skemmtilegt fljótlega enda ýmislegt að frétta!!!;)

 


Posted at Thursday, January 26, 2006 by stony
comments (4)  




Next Page








<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

MYNDIR

Endilega skoðið skoðanir mínar....þar fjalla ég um málefni sem skipta máli!

SKOÐANIR MÍNAR

Bloggarar

Guðbjörg

Karen

Palli

Óli Jói

Hlínza

Guðni

Elli

Gulli

Heiðdís

Torfi

Julia Gulia

Þorkell

Inga Jóna

Elfa Rut

Ollý frænka

Birna

Haukur

Einu vinir mínir sem hlæja af mér

Ísak

Aðrir linkar

Mogginn

Allar fréttir úr boltanum

Besta utandeildarliðið

Núverendi stórveldi

Fitness.is

Hvatur

Ef þú vilt byrja að blogga

Fimmtudagsboltinn








If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed